Innlent

Skiptir engu fyrir framvinduna

Arnar Jensson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra, segir þær upplýsingar um tildrög kærunnar í Baugsmálinu sem komu fram í Fréttablaðinu dag engu skipta fyrir lögregluna eða framvindu málsins. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir vill ekkert segja um málið að sinni, en orð hennar um að rannsókn málsins hafi farið fram í ákveðnu pólitísku andrúmslofti féllu ekki í góðan jarðveg hjá lögreglunni. Arnar sagði í samtali við fréttastofu í dag að þessar upplýsingar breyti ekki neinu fyrir lögregluna. Það sé gerður stór greinarmunur á opinberri rannsókn og aðdraganda þess að kæra berist. Hann segir lögregluna ekki hafa haft nokkra vitneskju um þennan aðdraganda, en þegar kæra berist til lögreglu þá hefjist einfaldlega hefðbundin vinnubrögð við að meta gögnin. Þingmenn og aðrir megi ræða um og hafa skoðanir á því í hvernig andrúmslofti kæra verði til, en þeir eigi ekki að skipta sér af meðferð sakamála eftir að rannsókn er hafin - dómstólarnir muni vega og meta hvernig hún var. Geir Haarde, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, vildi ekki tjá sig um málið og svara því hvort honum hefði verið kunnugt um að framkvæmdastjóri flokksins, ritstjóri Morgunblaðsins og Jón Steinar Gunnlaugsson, allt menn í innsta hring Sjálfstæðisflokksins, hefðu fundað um mál Jóns Geralds Sullenbergers á hendur Baugi. Það vildi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, heldur ekki en hún vakti reiði starfsmanna efnahagsbrotadeildar með ummælum sínum um að rætur Baugsmálsins lægju í tilteknu pólitísku andrúmslofti sem hefði verið skapað. Ingibjörg sagðist vilja bíða eftir því að öll gögn hefðu komið fram. Samkvæmt heimildum fréttastofu er von á ítarlegri fréttum af þessum fundahöldum og tildrögum kærunnar í Fréttablaðinu á morgun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×