Viðskipti innlent

Auglýst eftir framkvæmdastjóra KEA

Stjórn Kaupfélags Eyfirðinga hefur auglýst starf framkvæmdastjóra laust til umsóknar og rennur umsóknarfresturinn út 27. ágúst. Andri Teitsson lét af störfum í byrjun ágúst og var sagt að stjórn KEA hefði lagst gegn því að hann tæki sér fæðingarorlof. Síðar kom á daginn að í rauninni var um uppsögn að ræða vegna óánægju með störf Andra. Í auglýsingunni er sagt að háskólamenntun sé æskileg og reynsla mikilvæg, en mest áhersla lögð á leiðtogahæfileika viðkomandi.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×