Lífið

Heiða og Hildur Vala keppa til úrslita Idol í kvöld

Heiða og Hildur Vala.
Heiða og Hildur Vala.

Nú er allt að verða vitlaust í Idol stjörnuleit en úrslitaþátturinn verður haldinn í kvöld í Vetrargarðinum í Smáralind. Það er þegar orðið ljóst að Idol Stjarnan í ár verður glæsileg stúlka með fallega söngrödd... en hvor verður það, Heiða eða Hildur?

Hildur Vala mun syngja lögin "The boy who giggled so sweet" sem Emilíana Torrini gerði vinsælt um árið og svo "Án þín" með Trúbrot. Heiða syngur lögin "Ég veit þú kemur" eftir Gunnar Þórarðson og "Slappaðu af" með Flowers. 

Stúlkurnar munu svo báðar syngja lagið Líf sem Stefán Hilmarsson gerði vinsælt fyrir nokkrum árum, en lagið er eftir tónlistarstjóra Idol Stjörnuleitar, Jón Ólafsson.  Textinn er eftir Stefán Hilmarsson. 

Það verður mikið stuð og mikið því auk flutninga stúlknana mun Kalli Bjarni stíga á stokk ásamt því að allur 10 manna hópurinn mun syngja saman hóplag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.