Sport

Perez ver leikmenn Real

Florentino Perez, stjórnarformaður Real Madrid hefur stigið fram fyrir skjöldu ti lað verja leikmenn sína eftir dræmt gengi undanfarið. Hann tók sérstaklega til þá Ronaldo, Zidane og Beckham í þessu sambandi og sagði að enginn þeirra væri á förum frá félaginu og sagði stuðningsmönnum liðsins að hafa sig hæga í gagnrýni á kappana. "Þessir leikmenn gefa sig alla í leikinn og verja frídögum sínum í að byggja um ímynd félagsins, svo að ég vil ekki hafa það að sé verið að gagnrýna þá", sagði Perez og þvertók fyrir það að David Beckham væri á leið frá félaginu, en eins og venja er í herbúðum Real eru sögusagnir um brotthvarf leikmanna mjög fljótar af stað ef ekki gengur allt í haginn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×