Innlent

Sesar Arnar í tvær aðgerðir

Sesar Arnar Sanchez, íslenski hermaðurinn sem særðist í Írak fyrr í vikunni, mun að líkindum þurfa að gangast undir tvær aðgerðir á næstunni. Móðir hans, Arna Bára Arnarsdóttir, segir líkur á að hann verði skorinn upp á auga og fæti. Svo virðist sem hann hafi skaðast meira á öðrum fætinum en talið var í fyrstu. Hún á von á að hann verði í næstu viku fluttur frá Bagdad til Bandaríkjanna með viðkomu í Þýskalandi. Faðir Sesars ræddi við hann í gær og bar hann sig ágætlega.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×