Innlent

Festi bíl sinn á Fróðárheiði

Björgunarsveitarmenn og lögregla frá Ólafsvík komu ökumanni til aðstoðar eftir að hann festi bíl sinn í skafli á Fróðárheiði. Mikill skafrenningur var á heiðinni og fennti í mikla skafla, ökumaðurinn lenti í einum slíkum á jeppa sínum og komst ekki lengra. Hann þurfti að ganga nokkra vegalengd áður en hann komst í símasamband til að óska eftir aðstoð. Björgunarsveitarmenn úr Sæbjörgu héldu til aðstoðar manninum og tóku hann upp í bíl sinn þar sem hann var á leið aftur í bílinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×