Menning

Ung börn fái ekki ávaxtasafa

Foreldrar eiga ekki að gefa ungum börnum ávaxtasafa að drekka. Næringarfræðingar í Bandaríkjunum segja sífellt fleiri vísbendingar um að ávaxtasafi eigi þátt í stórfelldum tannskemmdum og offitu meðal ungra barna. Að mati næringarfræðinga við barnaspítala í Boston er nær enginn munur á sykruðu gosi og ávaxtasafa enda sé í báðum tilfellum uppistaðan í drykknum sykur og vatn. Að þeirra mati eiga ung börn ekki að neyta slíkra drykkja og er talið best að halda þeim við mjólk og vatn þegar þostinn sækir að.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.