Viðskipti innlent

Meðal stærstu hluthafa Skandia

Burðarás er kominn langt með að verða stærsti hluthafinn í Skandia, en Burðarás á nú 4,4 prósent í félaginu eftir að hafa keypt eitt prósent á hálfan milljarð sænskra króna, eða tæplega fimm milljarða íslenskra króna. Friðrik Jóhannsson, forstjóri Burðaráss, segir í samtali við Svenska Dagladet og félagið líti á Skandia sem góðan fjárfestingarkost, ekki sé verið að sækjast eftir stjórnarsæti. Meðal annarra stórra hluthafa í Skandia er Kaupþing sem á 2,8 prósent í félaginu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×