NBA í nótt 15. mars 2005 00:01
Nokkrir leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í körfuknattleik í nótt. Helst bar þar til tíðinda að Miami Heat vann sinn níunda leik í röð þegar liðið valtaði yfir Millwaukee Bucks 110-71 með Dwayne Wade sem sinn besta mann, en hann skoraði 29 stig fyrir Heat sem var að vinna sinn þrettánda heimaleik í röð og vantar aðeins einn sigur í röð til að jafna félagsmet sitt. Miami er nú komið fast á hæla Phoenix Suns og San Antonio Spurs, sem eru með bestan árangur allra liða í deildinni. San Antonio átti ekki í vandræðum með New Orleans Hornets í nótt og sigruðu örugglega 112-89 og hafa líklega kæst meira yfir endurkomu Tim Duncan úr meiðslum, en yfir sigrinum sjálfum, sem var aldrei í hættu. Það var varaleikstjórnandi Spurs, Beno Udrih sem var stigahæstur þeirra með 25 stig í fjarveru Tony Parker sem á við smávægileg meiðsli að stríða. Tim Duncan átti stórleik í sínum fyrsta leik í nokkra daga og skoraði 18 stig og hirti 13 fráköst á aðeins 26 mínútum í leiknum. Washington Wizards sigruðu Los Angeles Lakers örugglega 95-81 og unnu báða leiki sína við fyrrum meistarana á tímabilinu og það var í fyrsta skipti í sögu félagsins sem þeir ná þeim árangri. Larry Hughes og Gilbert Arenas voru atkvæðamestir í liði Washington og skoruðu báðir 21 stig, þótt sá síðarnefndi ætti við hnémeiðsli að stríða. Antawn Jamison lék aðeins nokkrar mínútur í leiknum og þurfti að fara af velli meiddur á hné. Kobe Bryant átti ekki góðan dag og hitti aðeins úr 6 af 22 skotum sínum utan af velli. Houston Rockets eru á góðu skriði þessa dagana og kláruðu fjögurra leikja ferðalag taplausir eftir að þeir lögðu Golden State Warriors í nótt á bak við 20 stig frá Tracy McGrady og liðið stefnir hraðbyri að góðu sæti í úrslitakeppninni í vor.
Körfubolti Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Birkir á leið til Vals á nýjan leik Segir álagið vera að drepa menn Helena verður á skjánum í vetur Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Fortnite er aðalleikurinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Derrick Rose leggur skóna á hilluna Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Óbreytt staða á toppnum í Rocket League Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Stefán fær Arsenal í heimsókn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Sjá meira