Hvar er varnarleikurinn Grindavík? 17. febrúar 2005 00:01
Grindvíkingar eru eina liðið í sögu úrvalsdeildar karla sem hefur aldrei farið undir 50% sigurhlutfall á tímabili en í vetur hefur hinsvegar lítið gengið. Leikmenn og þjálfarar hafa komið og farið og sem stendur er liðið í áttunda sæti með aðeins 8 sigra og 9 töp. Þetta þykir ekki merkilegur árangur hjá liði sem hefur unnið 35 af 44 leikjum sínum síðustu tvö tímabil (80%) og var spáð þriðja sætinu í árlegri spá fyrir mótið. Grindavík mætir Keflavík í kvöld á heimavelli í leik sem gæti vissulega markað tímamót hjá liðinu í vetur. Grindavík vann síðasta leik með dramatískum hætti á Sauðárkróki í fyrsta leik Jeffrey Boschee í Grindavíkurbúningnum. Boschee var stjörnuleikmaður í háskóla og mikill fengur fyrir Grindavíkurliðið nái hann sér á strik og sóknarlega er Grindavíkurliðið orðið óárennilegt á lokasprettinum. Sóknarleikurinn hefur í raun verið í ágætisformi á tímabilinu, aðeins Fjölnir hefur skorað fleiri stig að meðaltali og ekkert lið hefur skorað fleiri þriggja stiga körfur. En þegar tölfræði varnarleiksins er skoðuð er annað uppi á teningnum. Það eru liðnir rétt tæpir þrír mánuðir síðan liðið náði að halda mótherjum sínum undir 90 stigum og liðið hefur fengið á sig 97 stig að meðaltali undir stjórn Einars Einarssonar en hann tók við í desember. Liðið er að fá á sig 109,2 stig út úr hverjum 100 sóknum andstæðinganna og aðeins botnlið KFÍ er jafn gestrisið í vörninni af liðunum tólf í Intersportdeildinni. Grindvíkingar eiga það reyndar sameiginlegt með KFÍ að vera þeir einu sem hafa aldrei náð að halda andstæðingum sínum undir 80 stigum í fyrsti 17 leikjum Intersportdeildarinnar í vetur. Ekkert lið hefur heldur þvingað færri tapaða bolta hjá mótherjum sínum og þá eru sóknarmenn andstæðinganna að ná í 36,4% frákasta í boði undir körfu Grindvíkinga. Það hefur oft verið sagt að sóknin vinni leiki en það sé vörnin sem vinni titla. Það er alla vega ljóst að Grindvíkingar þurfa að fara að spila vörn ætli þeir sér eitthvað á Íslandsmótinu í ár. Varnartölfræði Grindavíkur í Intersportdeildinni: Stig mótherja: 93,2 (9. sæti) Tapaðir boltar mótherja: 14,2 (12. sæti) Sóknarfráköst mótherja: 14,5 (11. sæti) Stig mótherja á hverjar 100 sóknir: 109,2 (11. sæti) Skotnýting mótherja: 46,1% (7. sæti)
Körfubolti Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Birkir á leið til Vals á nýjan leik Segir álagið vera að drepa menn Helena verður á skjánum í vetur Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Fortnite er aðalleikurinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Derrick Rose leggur skóna á hilluna Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Óbreytt staða á toppnum í Rocket League Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Stefán fær Arsenal í heimsókn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Sjá meira