Sport

Stoudemire með 50 stig

Amaré Stoudemire setti persónlegt met þegar hann skoraði 50 stig í stórsigri Phoenix á Portland 117-84. Phoenix er með bestan árangur í deildinni með 26 sigurleiki en aðeins fjögur töp. Dirk Nowitzki skoraði 39 stig þegar lið hans, Dallas, burstaði Milwaukee 123-104. Houston kjöldró Utah Jazz 99-80 og Kobe Bryant skoraði 42 stig fyrir Lakers í 99-91 sigri á Denver. San Antonio Spurs tapaði fyrsta leik sínum af síðustu sex þegar liðið beið lægri hlut fyrir Sacramento Kings, 86-81. Washington vann Atlanta 104-101 en 35 stig frá Allen Iverson dugðu ekki Philadelphia 76ers gegn Los Angeles Clippers og lokatölur urðu 89-83. Þá vann Detroit auðveldan sigur á Boston Celtics, 100-88.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×