Sport

Eigendaskipti hjá Cleveland

Nýstirnið LeBron James skoraði 26 fyrir Cleveland sem sigraði Charlotte Bobcats 94-83 í NBA-deildinni í nótt. James lék með sérsmíðaða andlitsgrímu þar sem hann kinnbeinsbrotnaði í leik fyrir viku. Þá urðu eigandaskipti hjá Cleveland skömmu fyrir leik þegar auðkýfingurinn Dan Gilbert keypti félagið og heimavöll þess af Gordon Gund fyrir um 23 milljarða króna. Ray Allen skoraði 35 stig fyrir Seattle sem stöðvaði sigurgöngu Miami, 98- 96. Dwayne Wade skoraði 28 stig fyrir Miami sem hafði unnið 14 leiki í röð. Toronto sigraði Orlando með 105-94, Boston Celtics skellti New Orleans Hornets 108-90 og meistarar Detroit Pistons lögðu Chicago Bulls 87-80. Memphiz lagði Utan Jazz með 10 stiga mun, 92-82, Los Angeles Clippers unnu Denver 102-98 og Allen Iverson skoraði 28 stig fyrir Philadelphia sem skellti Golden State Warriors 112-104.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×