Sport

Tapleikjahrina Magic á enda

Orlando Magic batt enda á eigin ófarir með því að vinna Seattle Supersonics, 105-87, í NBA-körfuboltanum í fyrrinótt. Magic hafði ekki unnið leik síðan 22. desember og fjórir tapleikir litið dagsins ljós síðan þá. Steve Francis átti stórleik, skoraði 35 stig, tók 11 fráköst og gaf 6 stoðsendingar og þá átti Grant Hill góðan dag og var með 21 stig, 7 fráköst og 6 stoðsendingar. "Undanfarnar vikur hafa verið lélegar gegn liðum sem við bjuggumst við að vinna," sagði Hill. "Þegar leikið er gegn liði sem gæti hugsanlega rassskellt mann þá spilar maður með meira stolti."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×