Sport

Reshea Bristol á heimleið

Reshea Bristol, leikmaður Keflvíkinga í meistaraflokki kvenna í körfuknattleik, heldur af landi brott á morgun og leikur ekki meira með Keflavík í vetur. Foreldrar Bristol lentu í bílslysi og er hennar þörf á heimaslóðum þó svo að ekki sé um lífshættuleg meiðsli að ræða. Er þetta mikil blóðtaka fyrir Keflavíkurstúlkur enda hefur Bristol leikið vel með liðinu í vetur, skorað 21,3 stig, tekið 8,2 fráköst, gefið 7,3 stoðsendingar og stolið 6,8 boltum að meðaltali í leik. Síðasti leikur hennar verður gegn Haukum í kvöld.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×