Sport

Rockets vann Nets í framlengingu

Bob Sura, leikmaður Houston Rockets, setti persónulegt met í leik gegn New Jersey Nets þegar hann skoraði 35 stig í NBA-körfuboltanum í fyrrinótt. Rockets, sem setti met á leiktíðinni í leiknum á undan og skoraði þá 124 stig, vann leikinn 94-85 eftir framlengingu. "Hann var í hörkustuði í kvöld," sagði Jeff Van Gundy, þjálfari Rockets. "Jafnvel þó hann hitti ekki þá er ég alltaf jafn hrifinn af keppnisandanum sem honum fylgir. Það vantar fleiri leikmenn eins og hann." Tracy McGrady, sem meiddist á tá á dögunum, gekk ekki heill til skógar, skoraði þá 18 stig en hitti aðeins úr 6 skotum af 18. "Ég fann töluvert til þegar ég lenti eftir stökkskot í þriðja fjórðungi," sagði McGrady en til stóð að rannsaka meiðsli hans enn frekar í dag. Vince Carter var stigahæstur í liði Nets með 17 stig og tók 7 fráköst og gaf 6 stoðsendingar. Nets hefur aðeins unnið þrjá leiki af tíu eftir að Carter gekk til liðs við það.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×