Sport

Suns tapa fjórða leiknum í röð

Phoenix Suns töpuðu fjórða leik sínum í röð í NBA-deildinni, nú fyrir meisturum Detroit Pistons, 94-80. Chicago Bulls sigraði hins vegar New York Knicks 88-86, en þetta var sjöundi sigurleikur Bulls í röð. Stórslagur næturinnar var viðureign Los Angeles Lakers og Utah Jazz. Kobe Bryant lék ekki með Lakers vegna meiðsla og Utah vann Lakers nokkuð sannfærandi, 102-94. Þá skoraði Allen Iverson 29 stig fyrir Philadelphia sem sigraði New Orleans Hornets 95-91 og San Antonio burstaði Washington 101-73.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×