Sport

Grindavík sigraði Skallagrím

Grindavík sigraði Skallagrím með 98-92 í Intersport-deildinni í körfuknattleik í gærkvöldi. Darrell Lewis skoraði 30 stig og tók 12 fráköst fyrir Grindavík en Terrel Taylor var næststigahæstur með 27 stig. Jovan Zdravevski skoraði 21 stig fyrir Skallagrím og George Byrd 20 en hann tók auk þess 18 fráköst. Skallagrímur er í 5. sæti með 16 stig en Grindavík er tveimur stigum á eftir í 8. sæti. Þrír leikir voru í 1. deild.  Breiðablik vann ÍA 101-70, Valur vann Þór Þorlákshöfn 81-75 og Ármann/Þróttur vann Drang, 72-66.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×