Sport

Þjálfari Jóns Arnórs rekinn?

Áhangendur Dynamo St. Petersburg, liðs Jóns Arnórs Stefánssonar í rússnesku deildinni í körfuknattleik, eru áhyggjufullir yfir gengi liðsins um þessar mundir. Dynamo er taplaust í Evrópudeildinni en hefur hins vegar tapað tveimur leikjum í röð í heimadeild sinni. Menn hafa slegið upp þeirri spurningu hvort reka eigi þjálfarann, David Blatt en talsmaður liðsins sagði að það væri ekki í deiglunni að svo stöddu. Ráðning Blatts til Dynamo hafði stór áhrif á ákvörðun Jóns Arnórs að fara til Dynamo-liðsins. Það yrði því áfall fyrir Jón yrði Blatt látinn fara.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×