Sport

Kæru Jóns Arnars vísað frá

Dómstóll KKÍ hefur vísað frá kæru Jóns Arnars Ingvarssonar, þjálfara Breiðabliks, á hendur aganefnd KKÍ og Kristni Óskarssyni körfuknattleiksdómara. Kæran er tilkomin vegna kæru Kristins á hendur Jóni Arnari til aganefndar og úrskurðar aganefndar í kjölfarið en Kristinn sagði í skýrslu eftir leik Njarðvíkur og Breiðabliks í bikarkeppni KKÍ að Jón Arnar hefði látið frá sér fara „ærumeiðandi ummæli“. Það sætti Jón Arnar sig ekki við en gagnkæru hans var vísað frá.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×