Sport

Rijkaard rólegur eftir tapið

Frank Rijkaard, knattspyrnustjóri Barcelona, hafði litlar áhyggjur þó svo að liðið tapaði gegn Atletico Madrid, 2-0, um helgina. Þetta var fyrsti ósigur Barcelona á Nou Camp síðan í desember árið 2003. "Þetta var bara einn leikur og það eru enn margir eftir," sagði Rijkaard. "Þó að við töpum einum leik þýðir ekki að við hættum að spila vel." Real Madrid sigraði Espanyol 4-0 og minnkaði því forskot Barcelona í fjögur stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×