Sport

Keflavíkurstúlkur fá liðsstyrk

Kvennalið Keflavíkur í körfubolta fær nýjan bandarískan leikmann, Alex Stewart, að nafni á næstu dögum. Hún er 24 ára leikstjórnandi og leysir Resheu Bristol af hólmi en Keflavík hefur gengið illa eftir að Bristol þurfti af hætta af persónulegum ástæðum. Keflavíkurstúlkur mæta grönnum sínum Njarðvík í 1. deild kvenna kl. 19.15 í kvöld og KR tekur á móti Grindavík á sama tíma.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×