Sport

Erla tryggði Grindavík sigur

Erla Þorsteinsdóttir skoraði sigurkörfu Grindavíkur um leið og leiktíminn rann út í 86-88 sigri liðsins á KR í framlengdum leik í 1. deild kvenna í körfubolta í kvöld. Í hinum leik kvöldsins sigruðu Íslandsmeistarar Keflavík granna sína í Njarðvík 102-85 og bundu þar með enda á fjögurra leikja taphrinu. Erla var stigahæst í liði Grindavíkur með 23 stig en Myriah Spence kom henni næst með 20 stig. Hjá KR var Jerica Watson með 37 stig og Helga Þorvaldsdóttir skoraði 20 stig, tók 9 fráköst og átti 11 stoðsendingar. Það vó þungt í leiknum þegar Watson var útilokuð með sína fimmtu villu þegar tvær mínútur vrou eftir af framlengingunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×