Sport

Njarðvík yfir í hálfleik

Njarðvíkingar hafa yfir í hálfleik gegn Fjölni í úrslitaleik bikarkeppni karla í körfuknattleik, 43-39. Njarðvíkingar komu sterkir til leiks og skoruðu átta fyrstu stig leiksins en þá tóku Fjölnismenn leikhlé og endurskipulögð leik sinni. Fjölnismenn komust síðan yfir um miðbik hálfleiksins en Njarðvíkingar sigu fram úr undir lokin. Jeb Ivey hefur farið hamförum í liði Fjölnis og skorað 17 stig í fyrri hálfleik en þeir Darrell Flake og Sovic hafa skorað 9 stig hvor. Þessir þrír hafa því skorað 37 af 39 stigum Fjölnis í fyrri hálfleik. Hjá Njarðvíkingum dreifist stigaskorið mun betur og spurning hvort breiddin skili þeim sigri í leiknum. Alls hafa átta leikmenn skorað stigin 43 en atkvæðamestur hefur Anthony Lackey verið með 10 stig og þeir Friðrik Stefánsson og Guðmundur Jónsson með 7 stig hvor.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×