Sport

Suns lagði Jazz

Fimm leikir voru í NBA-körfuboltanum í gærkvöldi. Phoenix Suns vann Utah Jazz í leik þar sem sóknarleikurinn var í fyrirrúmi, en Suns sigraði 136-128. Amare Stoudemire skoraði 42 stig fyrir Phoenix og Steve Nash átti 18 stoðsendingar auk þess sem hann skoraði 19 stig. Phoenix hefur unnið 41 leik en tapað 12. Marc Jackson var hetja Philadelphia þegar hann skoraði sigurkörfuna á síðustu sekúndunni í 106-105 sigri á New York Knicks. Allen Iverson, sem skoraði 60 stig um helgina, skoraði 38 stig og tók 10 fráköst. Stephon Marbury var stigahæstur hjá Knicks með 32 stig. Meistararnir í Detroit unnu öruggan sigur á Milwaukee, 107-83, og Portland sigraði Charlotte Bobcats 80-77. Nick van Exel skoraði sigurkörfuna með skoti fyrir utan þriggja stiga línuna í þann mund sem flautan gall. 34 stig frá Gilbertas Arenas dugðu Washington ekki til sigurs gegn New Orleans Hornets. Hornets vann með tveggja stiga mun, 98-96.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×