Sport

Lakers í vanda

Lið Los Angeles Lakers er í miklum vandræðum þessa dagana og útlitið ekki gott hjá liðinu varðandi úrslitakeppnina.  Í nótt töpuðu Lakers fyrir Toronto Raptors 108-102, þrátt fyrir góðan leik Kobe Bryant, sem skoraði 31 stig.  Það voru þeir Jalen Rose og Donyell Marshall hjá Raptors sem gerðu út um leikinn með góðum leik í fjórða leikhluta. Af öðrum athyglisverðum úrslitum má nefna að sterkt lið Seattle steinlá fyrir lægra skrifuðum Milwaukee Bucks á útivelli 99-73 og Houston Rockets töpuðu sínum þriðja leik í röð, þegar þeir töpuðu fyrir Utah Jazz í Houston 99-92.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×