Sport

Fín afmælisgjöf frá Iverson

Chris Webber fékk góða gjöf á 32 ára afmæli sínu frá Allen Iverson er lið þeirra, Philadelphia 76ers, sótti Milwaukee Bucks heim í NBA-körfuboltanum í nótt. Iverson fór fyrir Sixers, skoraði 48 stig, gaf 8 stoðsendingar og leiddi sína menn til sigurs. Webber hafi hins vegar hægt um sig á afmælisdaginn og skoraði 15 stig. "Ég og Allen töluðum saman í gær um að við vildum vinna hér í kvöld. Það er það sem skiptir máli. Ég get náð mér betur á strik síðar," sagði Webber. Sixers er í níunda sæti Austurdeildarinnar um þessar mundir, einum sigurleik á eftir Indiana Pacers. Liðið vonast til að næla sér í sæti í úrslitakeppninni með hjálp Webber.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×