Sport

Pistons vann 8. leikinn í röð

Detroit Pistons vann sinn 8. leik í röð þegar liðið sótti Portland Trail Blazers heim í NBA-körfuboltanum í nótt. Rasheed Wallace, sem lék 8 tímabil með Blazers, skynjaði blendnar tilfinningar frá áhorfendum í Rose Garden í Portland á leiknum í gær. "Ég reyndi bara að vera einbeittur - ég vildi keyra á fullu á þá," sagði Wallace. "Af persónulegum ástæðum," bætti hann svo við. Þetta var í fyrsta sinn sem Wallace leggur leið sín til Portland eftir að hann vann titil með Pistons. Pistons vann leikinn örugglega, 103-93 og skoraði Wallace 12 stig í leiknum. Það var hins vegar félagi hans, Richard Hamilton, sem var stigahæstur á vellinum með 20 stig og gaf að auki 9 stoðsendingar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×