Sport

Gasol að ná sér af meiðslunum

Miðherji Memphis Grizzlies í NBA-deildinni, hinn spænski Pau Gasol, er tilbúinn að mæta á æfingar á nýjan leik eftir að læknar liðsins skoðuðu vinstri fótlegg hans í dag. Gasol meiddist nokkuð illa 25. janúar síðastliðinn og var búist við að hann yrði lengi frá en bati hans hefur verið betri en forráðamenn Grizzlies þorðu að vona. Gasol er Grizzlies gríðarlega mikilvægur en hann er leiðir liðið bæði í stigaskorun (18,9 að meðaltali) og fráköstum (8,2) en Memphis er í 7. sæti vesturdeildar sem stendur og í harðri baráttu um að komast í úrslitakeppnina.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×