Sport

Hildur maður leiksins

Landsliðskonan í körfuknattleik, Hildur Sigurðardóttir, skoraði 22 stig þegar lið hennar, Jamtland, sigraði Sallen, 95-64, í sænska körfuboltanum. Í sænska blaðinu Landstidningen í Östersund er Hildur sögð hafa leikið best allra á vellinum. Þetta var hennar síðasti leikur með liðinu en í samtali við blaðið útilokar hún ekki að spila með Jamtland á næstu leiktíð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×