Sport

Sjötti sigurinn í röð hjá Heat

Miami Heat vann sinn sjötta leik í röð er það tók á móti Allen Iverson og félögum í Philadelphia 76ers í NBA-körfuboltanum í nótt. Lokatölur urðu 108-100 en staðan í hálfleik var 63-50, Heat í vil. Dwyane Wade fór mikinn í liði heimamanna, skoraði 32 stig, tók 5 fráköst og gaf 7 stoðsendingar. Allen Iverson, sem er stigahæstur í deildinni í dag með 30,3 stig að meðaltali í leik, var atkvæðamestur hjá Sixers með 27 stig og 6 stoðsendingar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×