Sport

Stólkastarinn fyrir rétt

Bryant Jackson, stuðningsmaður Detroit Pistons í NBA-körfuboltanum, kom fyrir rétt í Pontiac, Michigan, í gær en honum er gefið að sök að hafa hent stól inn á völlinn á leik Pistons og Indiana Pacers þann 19. nóvember síðastliðinn. Eins og frægt er orðið brutust út slagsmál milli leikmanna Pacers og stuðningsmanna Pistons og náðist athæfi Jackson á myndband. Jackson gæti átt eins árs fangelsi yfir höfði sér verði hann fundinn sekur. Sækjandi málsins, Paul Walton, sagði að fullorðnir einstaklingar ættu að hafa hemil á sér. "Ef það er ekki hægt eiga þeir að fara í fangelsi," sagði Walton.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×