Erlent

Akayev sagði af sér

Askar Akayev, forseti Kirgistans, er sagður hafa sagt af sér í Moskvu í morgun þar sem hann er í eins konar útlegð vega víðtækrar andstöðu við hann og stjórn hans í heimalandinu. Þar með er hægt að hefja undirbúning fyrir kosningar í landinu sem haldnar verða þann 26. júní. Akayev hafði verið við völd í Kirgistan undanfarin fimmtán ár en óánægður almenningur hefur nú hrakið hann frá völdum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×