Innlent

Ósætti meðal stjórnarliða

Tveir stjórnarliðar segjast ekki styðja samgönguáætlun Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra. Annar vegna þess að loforð séu svikin, hinn vegna þess að fjármunum til framkvæmda sé misskipt. "Menn verða einfaldlega að standa við það sem þeir segja," sagði Kristinn H. Gunnarsson, Framsóknarflokki, í þingræðu og kvartaði undan því að loforð um framkvæmdir væru svikin. Gunnar I. Birgisson, Sjálfstæðisflokki, sagði misskiptingu fjármuna mikla og vísaði þar til framlaga á höfuðborgarsvæðinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×