Sport

Jón Arnór í beinni á Sýn

Á morgun fimmtudaginn 14. apríl verður bein útsending á sjónvarpsstöðinni Sýn frá stjörnuleik alþjóða körfuknattleikssambandsins, FIBA sem fram fer í Nicosia á Kýpur. Okkar maður Jón Arnór Stefánsson er í liði Evrópuúrvalsins sem er frábær árangur að ná hjá svo ungum íslenskum körfuboltakappa. Jón Arnór sem leikur með Dynamo St. Petersburg í Rússlandi mun leika gegn þjálfara sínum hjá Dynamo en hann stýrir liði heimsúrvalsins. Mikið verður um dýrðir í íþróttahöllinni en þar stíga á fjalirnar bestu körfuknattleiksmenn sem leika í Evrópu (FIBA Europe League) í dag, bæði evrópskir og frá öðrum heimsálfum. Eini Vestur Evrópubúinn í Evrópuúrvalinu er okkar maður, Jón Arnór Stefánsson. Hálfgerð upphitun fyrur sjálfa Eurovison keppnina verður meðal skemmtiatriða í höllinni því Eurovision-farar Kýpverja og Grikkja munu stíga á svið og taka lagið. Konstantinos Christoforou frá Kýpur mun syngja lagið "Ela Ela" og Helena Paparizou frá Grikklandi syngur sitt lag "My Number One".



Fleiri fréttir

Sjá meira


×