Sport

Dynamo í úrslit FIBA Europe

Jón Arnór Stefánsson og félagar í Dynamo St. Petersburg báru sigurorð af BC Khimki í undanúrslitum FIBA Europe keppninnar í Istanbúl í Tyrklandi í dag. Lokatölur urðu 92-81 en staðan í leikhléi var 44-49, Khimki í vil. Jón skoraði 14 stig í leiknum og tók 4 fráköst. Bosníumaðurinn Ognjen Askrabic átti stórleik og skoraði 28 stig, tók 11 fráköst, gaf 6 stoðsendingar og stal þremur boltum. Úrslitaleikurinn fer fram á morgun en Dynamo mætir sigurvegaranum úr viðureign úkraínska liðsins BC Kyiv og Fenerbahe SK frá Tyrklandi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×