Innlent

Samkeppnislögin rædd eftir helgi

Þingmenn ræddu breytingar á samkeppnislögum í allan gærdag þar til þingfundi var slitið um klukkan hálf sjö. Lengstu ræðurnar voru á þriðju klukkustund. Þrettán voru á mælendaskrá þegar fundi lauk og verður því umræðunni haldið áfram á mánudag. Stjórnarandstaðan varar við frumvarpinu og segir það veikja lögin.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×