Sport

Becks: Glazer góður fyrir Man Utd

David Beckham hefur tekið upp hanskann fyrir bandaríska auðnjöfurinn Malcolm Glazer og segir að stuðningsmenn Man Utd þurfi ekki að hafa miklar áhyggjur. Beckham segir að hann eigi eftir að hafa góð áhrif á félagið en eins og kunnugt er ríkir gríðarleg andstaða meðal stuðningsmanna vegna kaupa Glazer á Man Utd. "Þetta getur ekki verið svo slæmt fyrir félagið. Manchester United verður alltaf stórveldi. Þeir munu alltaf hafa bestu leikmennina, góðu leikmennina. Þeir eru með frábæran knattspyrnustjóra og mann sem hefur greinilega yfir miklu fé að ráða. Ekki laust við að Beckham sé að koma sér aftur í mjúkinn hjá gamla stjóranum sínum, Sir Alex Ferguson en kantmaðurinn ofurfrægi hefur títt verið orðaður við endurkomu til Englands undanfarið þar sem Arsenal og Chelsea eru sögð bíða með opin veski.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×