Sport

Við erum sterkari en Ungverjar

Ásgeir Sigurvinsson landsliðsþjálfari segir að Ísland eigi að leggja Ungverjaland að velli á góðum degi. Hann segir að í versta falli þurfi liðið að fá fjögur stig úr næstu tveimur leikjum en krafan er sex stig. „Það er alveg ljóst að við þurfum að halda hreinu og sýna karakter í þessum leik. Hlutverk okkar er að ná upp góðri baráttu í liðið, þetta er leikur sem við þurfum að vinna." sagði Ásgeir Sigurvinsson eftir æfingu landsliðsins á Laugardalsvelli í gær. „Okkar besti leikur í riðlakeppninni til þessa var fyrri leikurinn gegn Ungverjalandi þar sem við töpuðum niður góðri stöðu. Þeir hafa gott lið en mitt mat er að þeir séu veikari en við núna, ég sá þá keppa á móti Frakklandi þar sem þeir áttu slakan fyrri hálfleik. Í hálfleik gerðu þeir fimm breytingar og tóku til að mynda sína reyndustu menn af velli, eins og Zoltan Gera og Imre Szabi. Komu síðan sterkir inn í seinni hálfleik og þar sást að þeir hafa ýmsa leikmenn sem má ekki vanmeta. Þeir hafa ágætis lið en á góðum degi eigum við að vinna þá." sagði Ásgeir í gær. Fyrri leikur þjóðanna í Ungverjalandi endaði með 3-2 sigri heimamanna. „Krafan er kannski sex stig úr næstu tveimur leikjum. Aðalatriðið fyrir mig er að liðið sýni góða baráttu og eigi góðan leik, að þessir ungu strákar nái að sýna sitt rétta andlit. Eiður Smári er kominn inn en Hermann getur ekki verið með, sem veikir vörnina verulega. Ég hef sagt það að í versta falli þurfum við fjögur stig úr þessum tveimur leikjum." sagði Ásgeir, en aðspurður sagðist hann ekki ætla að hætta þó þessi markmið myndu ekki nást. „Við erum samningsbundnir KSÍ út október þannig að við erum ekkert að hugsa út í það að hætta." Menn hafa verið að velta því fyrir sér hvort Eiður verði einn í fremstu víglínu í leiknum á laugardag eða jafnvel nær miðsvæðinu. „Eiður hefur verið að spila þarna fyrir aftan sóknarmennina með sínu félagsliði og gert það vel. Við prufuðum hann í þessa stöðu í Englandi en það gekk ekki nægilega vel, það er samt aldrei að vita nema við höfum hann þarna aðeins fyrir aftan fremstu menn." sagði Ásgeir. Þrír leikmenn sem leika hér heima eru í íslenska hópnum, þar á meðal Helgi Valur Daníelsson hjá Fylki. „Hann er að stimpla sig inn, mjög fjölhæfur strákur sem við höfum fylgst vel með í gegnum tíðina og við getum notað hann bæði í bakverðinum og á miðjunni," sagði Ásgeir Sigurvinsson, landsliðsþjálfari Íslands í knattspyrnu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×