Sport

West Ham á eftir Heiðari

Enn harðnar samkeppni úrvalsdeildarliðanna um Heiðar Helguson því samkvæmt fréttavef BBC í morgun vill West Ham fá Heiðar í sínar raðir. Watford hafnaði á dögunum 120 milljón króna tilboði frá Sunderland og er talið að West Ham, sem tryggði sér sæti í ensku úrvalsdeildinni á dögunum, ætli að bjóða betur. Þá hefur félagið haft Ívar Ingimarsson, varnarmann Reading, undir smásjánni í vetur og samkvæmt BBC ætlar West Ham að gera tilboð í Ívar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×