Sport

Zenden orðaður við Liverpool

Hollenski miðjumaðurinn Bundewijn Zenden er í enskum miðlum í dag, sagður vera á leið til Liverpool frá Middlesbrough, með það fyrir augum að geta spilað í meistaradeildinni. Samningur Hollendingsins rennur út eftir nokkra daga og talið er að hann muni vekja áhuga Rafa Benitez, stjóra Liverpool, sem er á höttunum eftir reyndum leikmönnum til að styrkja hópinn hjá sér. "Peningar eru ekki aðalatriðið hjá Bundewijn," sagði faðir hans í samtali við blaðamenn. "Aðalatriðið fyrir hann er að fá að spila í Evrópukeppni."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×