Sport

Formaður Newcastle vill árangur

Freddy Shepherd, stjórnarformaður Newcastle, hefur gefið út yfirlýsingu þar sem hann ítrekar ósk sína um að liðið nái betri árangri í vetur en undanfarin ár og hefur með þessum orðum sett mikla pressu á Graeme Souness knattspyrnustjóra, sem margir spá því að verði fyrsti stjórinn til að taka pokann sinn í haust. "Souness veit hvað hann vill og veit hvernig hann ætlar að fara að því, en nú er kominn tími til að standa við stóru orðin. Newcastle hefur náð ágætum árangri á síðasta áratug, en tímabilið í fyrra var stór vonbrigði og við viljum fara skrefinu lengra með liðið í ár, ekkert minna," sagði Shepherd ákveðinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×