Sport

S.W.P. vill ræða við Chelsea

Shaun Wright Phillips leikmaður, Manchester City hefur beðið um leyfi frá félaginu til að ræða við forráðamenn Chelsea um hugsanleg félagaskipti. Í gær hafnaði Manchester City tilboði Chelsea í Wright Phillips sem hljóðaði upp á 20 milljónir punda. "Wright Phillips bað um leyfi í gær til að tala við Chelsea og tjáði okkur að hann vildi að Chesea og City myndu ná saman um kaupverð," sagði Paul Tyrell, talsmaður Manchester City. Það lítur nú allt út fyrir það að Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, sé loksins að landa einum af sínum draumaleikmönnum, því hvorki hefur gengið né rekið hjá félaginu að fá stórstjörnur til sín í sumar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×