Sport

Essien kostar 32 milljónir

Forráðamenn franska knattspyrnuliðsins Lyon hafa gefið út að Chelsea verði að punga út sömu upphæð og það var tilbúið að eyða í Steven Gerrard ef það ætlar sér að kaupa Mickael Essien. "Ef Essien á að fara frá Lyon, verður það fyrir sömu upphæð og boðin var í Steven Gerrard, því við vitum að við eigum miklu betri möguleika á að vinna meistaradeildina með hann innanborðs. Við viljum auðvitað ekki selja hann, en ef áframhaldandi vera hans hérna skemmir fyrir liðsandanum, höfum við líklega ekki annara kosta völ," sagði talsmaður Lyon.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×