Sport

Coleman vill Saha aftur til Fulham

Chris Coleman, knattspyrnustjóri Fulham í ensku úrvalsdeildinni, hefur nú beint sjónum sínum að fyrrum framherja liðsins, Louis Saha og ætlar sér að reyna að fá hann aftur til félagsins frá Manchester United, þar sem hann hefur ekki náð að festa sig í sessi. "Saha er frábær leikmaður og ég myndi fá hann hingað á morgun án þess að hugsa mig um, en auðvitað er þetta alltaf spurning um peninga. Hann er á mjög háum launum og ég veit ekki hvernig við förum að því að leysa það," sagði Coleman, sem er við það að missa Andy Cole til Manchester City.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×