Sport

Venesúela er verðugur andstæðingur

Knattspyrnusamband Íslands hefur samið um að leika tvo vináttulandsleiki í sumar og haust, gegn Venesúela hér heima þann 17. ágúst og gegn Pólverjum ytra í október. Framundan eru lokaleikirnir í undankeppni fyrir HM 2006 og þó svo að Ísland eigi enga möguleika á sæti þar verður engu að síður kappkostað við að ná góðum úrslitum og eru vináttulandsleikirnir hugsaðir sem undirbúningur fyrir þá leiki. Leikur Íslands og Venesúela verður sjöundi landsleikur Íslands gegn liði frá Mið- og Suður-Ameríku. Í þeim leikjum hefur Ísland einu sinni borið sigur úr býtum, gegn Bólivíu árið 1994 þar sem Þorvaldur Örlygsson skoraði sigurmark Íslands. Venesúela verður seint talið stórveldi í suður-amerískri knattspyrnu en liðið er í 9. og næstneðsta sæti undankeppni Suður-Ameríku fyrir heimsmeistarakeppnina. Liðið hefur þó náð athyglisverðum úrslitum, til dæmis unnið Úrúgvæ og Kólumbíu á útivelli og tapað naumlega fyrir Argentínu, 3--2, einnig á útivelli. Ísland leikur svo gegn Pólverjum ytra 7. október en Pólland trónir á toppi síns riðils sem stendur og mun væntanlega leika þýðingarmikinn leik gegn Englandi í lokaumferð riðlakeppninnar á sama tíma og Svíar taka á móti Íslendingum. "Við kappkostum við að fá landsleik hér heima í ágúst," segir Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri KSÍ. "Við leituðum fyrir okkur í Evrópu en þá voru nærri allir uppteknir á þessum degi. En það verður gaman að geta boðið íslenskum áhorfendum upp á knattspyrnulandslið frá annarri heimsálfu." Geir segir að þó svo að staða Íslands í undankeppninni sé slæm skiptir hvert stig máli upp á framtíðina að gera og að vináttuleikirnir séu ekki síður mikilvægir. "Við erum að þróa okkar lið og reyna að bæta okkar leik. Þessir leikir eru líka hluti af því að vera í alþjóðlegu samstarfi. Knattspyrnan í Suður-Ameríku er sterk og Venesúela er sannarlega verðugur andstæðingur."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×