Innlent

32% vilja Össur sem borgarstjóra

Þrjátíu og tvö prósent þeirra sem tóku afstöðu í skoðanakönnun sem Plúsinn gerði eftir hádegi í gær sögðust vilja sjá Össur Skarphéðinsson sem næsta borgarstjóra. Sextíu og átta prósent voru því andvíg en spurt var hvort fólk vildi hann í embættið eða ekki. Í tilkynningu frá Netleiðum segir að könnunin hafi verið gerð í ljósi umræðna sem átt hafi sér stað um hugsanlegt framboð Össurar til borgarstjóra. Í hádegisfréttum Bylgjunnar í gær útilokaði Össur hugmyndina ekki með öllu en sagði hins vegar að málið hefði ekki komið til tals.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×