Sport

Öruggur sigur Arsenal

Arsenal burstaði austuríska liðið Ritzing í æfingaleik ytra í gær, 2-5. Það voru þeir Thierry Henry, Dennis Bergkamp, Jose Reyes, Alexander Hleb og Sebastian Larson sem skoruðu mörk Arsenal í leiknum. Arsenal var miklu sterkara liðið í leiknum og hefði með smá heppni getað skorað yfir 10 mörk en markvörður Ritzing átti stórleik þrátt fyrir að hafa fengið á sig fimm mörk. Arsenal hefur verið að spila mjög vel í æfingaleikjum sínum það sem af er sumri og er enn taplaust. Næstu leikir liðsins eru gegn Utrecht, Ajax og Porto, og síðan mætir liðið Chelsea í leiknum um góðgerðarskjöldinn þann 7. ágúst nk.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×