Sport

Lyn býður í Garðar Jóhannson

Norska úrvalsdeildarliðið Lyn hefur sent KR-ingum tilboð í sóknarmanninn Garðar Jóhannsson.  Garðar fór til Noregs fyrr í þessari viku og náði að heilla forystumenn norska liðsins.  KR-ingar fengu tilboð í Garðar í gær og hafa KR-ingar tekið tilboðinu. Standist Garðar læknisskoðun er ekkert því til fyrirstöðu að hann gangi til liðs við norska liðið.  Lyn er í sjötta sæti norsku úrvalsdeildarinnar.  Með liðinu leikur annar íslenskur knattspyrnumaður, Stefán Gíslason.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×