Sport

Vilja reka Strachan

Stuðningsmenn skoska knattspyrnuliðsins Glasgow Celtic heimta að nýi knattspyrnustjórinn Gordon Strachan verði rekinn. Strachan stýrði Celtic í fyrsta alvöru keppnisleiknum í gærkvöldi en þá tapaði Celtic 5-0 fyrir Artmedia Petrzalka frá Slóvakíu í forkeppni meistaradeildarinnar. Þetta er stærsti ósigur Celtic í Evrópukeppni og jafnframt stærsti ósigur liðsins í 42 ár en Celtic tapaði árið 1963 fyrir Kilmarnock 6-0.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×