Sport

Helsingborg - Djurgarden

Heilsingborg sigraði Djurgarden með tveimur mörkum gegn engu í uppgjöri efstu liðanna í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Kári Árnason var í byrjunarliði Djurgarden, en var tekinn af velli þegar stundarfjórðungur var til leiksloka. Djurgarden og Helsingborg eru efst og jöfn í deildinni með 30. stig. Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði fyrir Halmstad þegar liðið beið lægri hlut fyrir Hammerby, 2 - 1, og þá sigraði Gautaborg - Hacken, 1 - 0. Hjálmar Jónsson lék ekki með Gautaborg vegna meiðsla.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×